Persónuverndarstefna

Uppfært 29. september 2026

Stefnan lýsir því hvernig Þrift meðhöndlar persónuupplýsingar og tekur gildi þegar appið kemur út; enn sem komið er safnar Þrift engum persónuupplýsingum um notendur. Endanleg útgáfa, yfirfarin af lögmanni, birtist á þessari slóð áður en að því kemur; slóðin sjálf breytist ekki.

Ábyrgðaraðili

Salva ehf. rekur Þrift og er ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem hér er lýst. Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Fyrirspurnir um persónuvernd sendast á thrift@thriftapp.is. Heimilisfang félagsins er neðst á þessari síðu.

Hvaða persónuupplýsingum er safnað

Í hvaða tilgangi og á hvaða heimild

Upplýsingarnar eru notaðar til að reka markaðinn: stofna aðgang, birta söluskráningar, koma pöntun til skila, greiða seljanda og leysa úr erindum. Heimildin er samningssamband við notandann. Bókhald og skattskil byggja á lagaskyldu. Vinnsla vegna öryggis og varna gegn misnotkun byggir á lögmætum hagsmunum. Tilkynningar sem tengjast ekki pöntun eru sendar á grundvelli samþykkis sem má afturkalla hvenær sem er.

Með hverjum er upplýsingum deilt

Kaupandi og seljandi sjá þær upplýsingar hvor um annan sem þarf til að ljúka viðskiptunum. Að öðru leyti er upplýsingum deilt með þjónustuaðilum sem vinna fyrir Þrift: auðkenningarþjónustu, greiðsluþjónustu, flutningsaðila og hýsingaraðila. Hver þeirra fær einungis þær upplýsingar sem verkið krefst. Upplýsingar eru ekki seldar. Starfi þjónustuaðili utan Evrópska efnahagssvæðisins er stuðst við staðlaða samningsskilmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Kennitölur

Kennitala seljanda er ekki varðveitt í læsilegu formi. Hún er geymd sem óafturkræft dulkóðað gildi ásamt fjórum síðustu tölustöfunum og nafnið er geymt dulkóðað. Kennitalan er hvorki birt öðrum notendum né skráð í annála.

Greiðsluupplýsingar

Þrift varðveitir engin kortanúmer. Greiðslur fara fram með Apple Pay, Google Pay eða korti í gegnum greiðsluþjónustuaðila sem sér einn um kortaupplýsingarnar. Þrift fær staðfestingu á greiðslu.

Hversu lengi eru upplýsingar varðveittar

Upplýsingar um aðgang eru varðveittar meðan hann er virkur. Bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald. Pantana- og samskiptagögn eru varðveitt meðan unnt er að gera athugasemd eða ágreiningur er óleystur.

Eyðing aðgangs

Óska má eftir eyðingu aðgangs í stillingum appsins. Aðgangi er eytt þegar opnum pöntunum er lokið og persónuupplýsingar þá afmáðar. Gögn sem lög krefjast að séu varðveitt standa eftir í bókhaldi.

Réttindi hins skráða

Hinn skráði á rétt á aðgangi að upplýsingum um sig, leiðréttingu þeirra, eyðingu, takmörkun vinnslu, andmælum við vinnslu og flutningi upplýsinga. Erindi sendast á thrift@thriftapp.is. Telji hinn skráði að vinnslan samrýmist ekki lögum má senda kvörtun til Persónuverndar.

Vefkökur

Vefurinn thriftapp.is notar engar vefkökur og enga greiningarþjónustu. Ekkert efni er sótt til þriðja aðila.

Breytingar

Stefnan tekur gildi þegar appið kemur út. Hún er útgáfumerkt og aðgengileg í stillingum appsins. Verði gerðar efnislegar breytingar þarf að samþykkja hana að nýju.

Skilmálar

Skilmálar þjónustunnar eru á sérstakri síðu.

Lögaðili
Salva ehf.
Heimilisfang
Skógargerði 6, 108 Reykjavík
Sími
+354 765 1030
Kennitala
690408-0150