Skilmálar

Uppfært 29. september 2026

Skilmálarnir lýsa því hvernig markaðstorgið virkar og taka gildi þegar appið kemur út. Endanleg útgáfa, yfirfarin af lögmanni, birtist á þessari slóð áður en að því kemur; slóðin sjálf breytist ekki.

Um þessa skilmála

Skilmálarnir gilda um notkun á Þrift, hvort sem er til að skoða, kaupa eða selja. Salva ehf. rekur Þrift.

Skilgreiningar

Þrift er markaðstorgið sjálft, app og vefur. Seljandi er notandi sem setur flík í sölu. Kaupandi er notandi sem kaupir. Pöntun er ein greiðsla og getur náð til fleiri en eins seljanda.

Aðgangur

Skoðun krefst ekki aðgangs. Aðgang þarf til að vista flíkur, senda skilaboð, kaupa og selja. Seljandi auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og eitt seljandaauðkenni fylgir hverri kennitölu. Aldursskilyrði eru hluti af endanlegum skilmálum.

Hlutverk Þrift

Flíkurnar á Þrift eru seldar af notendum. Þrift rekur markaðstorgið, tekur við greiðslunni, skipuleggur sendingu og hýsir samskiptin. Þrift greiðir seljanda ekki fyrr en afhending hefur átt sér stað og frestur kaupandans er liðinn.

Skyldur seljanda

Seljandi skal eiga flíkina sem hann selur og lýsa henni rétt, þar á meðal ástandi og göllum. Flíkur skulu vera hreinar og tilbúnar til notkunar, og hafi flík verið breytt, til dæmis stytt eða þrengd, skal það koma fram í lýsingunni. Senda skal innan 3 virkra daga frá sölu, eða afhenda innan þess frests sem gildir um afhendingu í eigin persónu. Óheimilt er að selja falsaðar vörur eða vörur sem ekki má selja að lögum, og óheimilt er að beina viðskiptum út fyrir Þrift til að komast hjá þóknun.

Skyldur kaupanda

Kaupandi greiðir í appinu, sækir flíkina innan frests þegar afhending er í eigin persónu og gerir athugasemd innan 48 klukkustunda frá afhendingu ef eitthvað er að.

Verð og gjöld

Það kostar ekkert að skrá flík til sölu og ekkert að láta hana standa. Seljandi ákveður verðið sjálfur og ber ábyrgð á því.

Þóknun Þrift er 12% af söluverði flíkurinnar, virðisaukaskattur innifalinn, og dregst frá við útborgun til seljanda. Útborgun fer inn á bankareikning sem skráður er á kennitölu seljandans. Kaupandi greiðir 190 kr. kaupendavernd á hverja pöntun og sendingarkostnað samkvæmt verðskrá Dropp fyrir hvern seljanda sem sendir með Dropp. Sé flík sótt beint fellur sendingarkostnaður niður.

Öll gjöld koma fram áður en greitt er og á kvittun. Fjárhæð kaupendaverndar er endurskoðuð árlega miðað við vísitölu neysluverðs.

Afhending

Sending fer fram með Dropp á þann afhendingarstað sem kaupandi velur. Bjóði seljandi afhendingu í eigin persónu er hún staðfest með QR-kóða í appinu. Um sendinguna sjálfa gilda flutningsskilmálar flutningsaðilans. Berist vara ekki fer málið í þann farveg sem lýst er hér á eftir og kaupandi fær endurgreitt.

Afpöntun og endurgreiðsla

Kaupandi getur óskað eftir því að pöntun verði felld niður áður en hún er send, og samþykki seljandi það er endurgreitt að fullu ásamt sendingarkostnaði. Sendi seljandi ekki innan frestsins fellur pöntunin sjálfkrafa niður og er endurgreidd að fullu. Sama gildir um afhendingu í eigin persónu sem gengur ekki eftir innan sinna fresta. Berist vara ekki, eða reynist hún ekki eins og henni var lýst, er endurgreitt að hluta eða öllu leyti eftir því sem við á. Kaupendavernd er endurgreidd þegar ekkert í pöntuninni kemst til skila. Þrift tekur ekki við skilum vegna þess að flík passar ekki eða kaupandi skiptir um skoðun.

Samskipti

Kaupendur og seljendur tala saman í appinu. Notendur skulu koma fram af virðingu og Þrift getur takmarkað aðgang vegna áreitni. Samskipti um pöntun eiga að fara fram í appinu, svo þau fylgi málinu ef leysa þarf úr ágreiningi.

Efni notenda

Notandi á áfram það efni sem hann setur inn og veitir Þrift leyfi til að birta það og nota við að reka markaðstorgið og kynna það. Leyfið nær ekki lengra en það.

Brot á skilmálum

Þrift getur fjarlægt söluskráningu, takmarkað aðgang eða lokað honum sé brotið gegn skilmálunum. Lokun vegna brots kemur í veg fyrir nýskráningu á sömu kennitölu.

Ágreiningur

Komi upp ágreiningur er fyrsta skrefið að senda erindi á thrift@thriftapp.is. Um skilmálana gilda íslensk lög og mál sem af þeim kunna að rísa eru rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Gildistaka

Skilmálarnir eru útgáfumerktir og sýndir við nýskráningu. Verði gerðar efnislegar breytingar er óskað eftir samþykki að nýju áður en notkun heldur áfram.

Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga er lýst í persónuverndarstefnunni.

Lögaðili
Salva ehf.
Heimilisfang
Skógargerði 6, 108 Reykjavík
Sími
+354 765 1030
Kennitala
690408-0150