Aðstoð

Spurningar um pöntun, sölu eða aðgang fara á thrift@thriftapp.is

Fari pöntun úrskeiðis er fljótlegast að tilkynna það í appinu.

Hvað kostar að kaupa?

Verð flíkurinnar og 190 kr. kaupendavernd. Sendingarkostnaður bætist við samkvæmt verðskrá Dropp, nema þú sækir flíkina.

Hvernig greiði ég?

Með Apple Pay, Google Pay eða korti. Þrift geymir engin kortanúmer.

Hvenær fæ ég greitt sem seljandi?

Greiðslan fer inn á bankareikninginn þinn þegar 48 klukkustunda frestur kaupandans er liðinn, að frádreginni 12% þóknun.

Seljandinn sendi ekki. Hvað gerist?

Seljandi hefur 3 virka daga til að senda. Líði fresturinn fellur sá hluti pöntunarinnar sjálfkrafa niður og er endurgreiddur að fullu, sendingin með.

Varan kom ekki, eða var ekki eins og henni var lýst

Tilkynntu það í appinu innan 48 klukkustunda frá afhendingu og láttu myndir fylgja. Sé fresturinn liðinn sendu okkur línu á thrift@thriftapp.is.

Get ég skilað flík sem passar ekki?

Nei. Kaupendavernd nær yfir vöru sem berst ekki eða reynist ekki eins og henni var lýst, en ekki yfir stærð eða skoðanaskipti. Spurðu seljandann í skilaboðum áður en þú kaupir.

Hvernig eyði ég aðganginum mínum?

Í stillingum appsins. Aðgangi er eytt þegar opnum pöntunum er lokið. Sjá persónuverndarstefnuna.

Hvenær kemur appið?

Þrift kemur út á iOS og Android haustið 2026. Spurningar fram að því fara á thrift@thriftapp.is.

Staðfestir seljendur
Öruggar greiðslur

Lögaðili
Salva ehf.
Heimilisfang
Skógargerði 6, 108 Reykjavík
Sími
+354 765 1030
Kennitala
690408-0150