Um Þrift
Þrift er íslenskur markaður fyrir föt
Félagið
Kennitala 690408-0150
Salva ehf. er íslenskt einkahlutafélag með skráð heimilisfang í Reykjavík. Félagið þróar og rekur Þrift og er samningsaðili notenda, eins og skilmálarnir og persónuverndarstefnan taka fram. Nafnið Þrift er notað um appið, vefinn og þjónustuna.
Hvað Þrift gerir
Þrift er app þar sem fólk selur föt sem það notar ekki lengur og kaupir föt af öðrum. Seljandi skráir flík með myndum og verði sem hann ákveður sjálfur. Kaupandi greiðir í appinu, Þrift geymir greiðsluna og seljandi fær hana þegar flíkin er komin til skila. Sending fer með Dropp, eða flíkin er sótt beint. Þrift á ekki fötin og selur engin föt sjálft; það rekur markaðinn, tekur við greiðslunum og hýsir samskiptin.
Hvers vegna
Það á að vera jafn einfalt að selja flík og að kaupa hana, og hvort tveggja á að vera öruggt. Þess vegna staðfesta seljendur hver þeir eru, greiðslan bíður afhendingar og kaupendavernd fylgir hverri pöntun.
Útgáfa
iOS og Android, haustið 2026
Þrift kemur út á iOS og Android haustið 2026. Skilmálar og persónuverndarstefna eru aðgengileg hér á vefnum og taka gildi með appinu.
Hafðu samband
Fyrirspurnir um þjónustu, samstarf og fjölmiðla fara á netfangið. Símanúmer og póstfang félagsins eru hér fyrir neðan. Aðstoð við notendur og algengar spurningar eru á aðstoðarsíðunni.
Staðfestir seljendur
Öruggar greiðslur
- Lögaðili
- Salva ehf.
- Heimilisfang
- Skógargerði 6, 108 Reykjavík
- Netfang
- thrift@thriftapp.is
- Sími
- +354 765 1030
- Kennitala
- 690408-0150